þriðjudagur, mars 09, 2004

Þá er þetta komið!
Í gær var merkis dagur Helena varð mamma! :) Jii , frábært. Semsagt í gær urðu Helena og Sverrir foreldrar, þau eignuðust litla stelpu 15 og hálf mörk! Hún er með dökkt og mikið hár segir sagan. En það er skondin saga hvernig þetta fréttist út. Því í gær hringdi J'ohanna í systir hennar Helenu til að panta klippingu og þá var Helena nýbuin að eiga...bara 40 mín eða e-ð síðan og systir hennar á leið á spítalann :) Æi hvað þetta er mikið æði, En já Jóa sendi þá öllum sms að það væri komin lítil snúlla og svo soldið á eftir hennar skilaboði kom frá foreldrunum.
Fyndið samt við vorum í afmæli hjá Helenu á föstudag og litla snúlla var alveg á fullu í mallanum og ég tók það upp á myndband á litlu myndaválinni hans Kára og stelpurnar voru alveg að missa sig. Örugglega mjög skemmtileg sjón! en svo þegar ég kom heim þá sést ekkert og heyrist ekkert! MERGJAÐ FÚLT :( EN í gær var ég að pæla að hringja í Helenu og kanski að ath hvort við gætum tekið upp aftur....en það tækifæri rann mér úr gripum .....en svona er þetta bara...ég tek bara upp barnið sjálft fyrir utan bumbuna :) það er bara betra!

Ég er gett búin að vera að vesenast í þessu bloggi, komin með comment og e-ð sem ég veit ekki hvað er :) OG ég er e-ð að vesenast í að fá mér album ..ég er komin með það en er ekki alveg að átta mig á því!

Þangað til næst....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home