föstudagur, júní 04, 2004

Jæja þá er maður komin heim eftir útlöndin :)
Það var svaka stuð og gaman að fara í svona öðruvísi ferðalag en ég hef farið í áður. Við ferðuðumst með flugvél, rútu, lest og ferju og ég kom við í 3 löndum sem ég hef ekki farið áður til :)
Miklum tíma var eytt í h&m verslunum og þarna upplifði ég í fyrsta skipti hvernig ég held að það sé að vera karlmaður í verslunarleiðangri allavegana var ég í horninu með þeim strax í fyrstu búðinni :)
Mér tókst að sólbrenna og er að flagna núna svona skemmtilega. Einkar skemmtilegt þar sem ég brann efst á enninu og það er bara eins og ég sé með svona gígantíska flösu JAKK.
Er núna að passa, strákarnir sofnaðir og það er svo gott að komast á netið aftur. Það er búið að loka netinu heima í einhvern tíma. Vá hvað maður er fljótur að verða háður.
Allavegana ég er alveg dottin úr gírnum
Þangað til næst........